miðvikudagur, 11. júní 2008
Nú er kominn miðvikudagur 11 júní og ekkert hfur verið skrifað lengi Tóti og Matti eru núna búnir að hjóla upp allt Finnland og búnir að fara í mörg og góð gufuböð með öllu sem því fylgir. Það er aðeins farið að kólna hjá þeim. Þeir eru komnir fyrir botninn á Eystrasaltinu og eru lagðir af stað niður Svíþjóðarmegin. Þeir urðu að hætta við að fara upp til Gellevare og Kiruna þar sem hitastigið þar norðurfrá var komið heldur neðarlega og ekki nóg með það heldur snjóaðir þar og var um 10 cm snjór í Kiruna og spáin svipuð fram að helgi. Svo þeir félagar tóku rúnt upp með landamærum Finnlands og Svíþjóðar upp frá Tornio og var þar all fagurt. Þeir óku upp með flóti sem ég man ekki hvað heitir en er á landamærunum. Þeir félagar eru nú á leið suður að Umeaa og ætla þar yfir til Noregs og taka svo strikið til Þrándheims með viðkomu á sveitaserti ca 150 km norðan við Þrándheim og taka því rólega og fara í nokkrar styttri ferðir um skerjagarðinn. Ég er ekki með myndir núna en ég lofa því að senda inn myndir og vonandi í síðasta lagi annaðkvöld. Þetta er gott í bili og vil ég misnota aðstöðu mína og þakka öllum þeim sem af hlíhug hafa haft sambandi við mig og mína á þessum erfiðu tímum, það er alltaf gott að finna stuðninginn og segi ég bara takk kærlega kæru vinir. GK.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Frábært að geta fylgst svona með þessari einstöku ferð sem að þið þrír lögðuð í.
Gunnar, við vottum þér okkar samúð vegna fráfalls föður þíns.
Kveðja,
Alli og Anna Smaladrengir.
p.s. takk fyrir samfylgdina í fluginu frá Svíþjóð, Anna.
Skrifa ummæli