föstudagur, 27. júní 2008


Þá er þessari ferð lokið en Blogginu er ekki lokið ennþá og munum við setja nokkrar áhugaverðar myndir hér inn á næstu dögum en núna vil ég aðeins halda spennunni og setja inn ferilinn alla leið frá Finnlandi og til Bergen. Þetta er sú leið sem Tóti og Matti fóru eftir að við skildum. Mér var boðið far austur á Seyðisfjörð að ná í hjólið og þáði ég það með þökkum þó ekki væri það Honda sem ég var "reiddur" á. En það verður að viðurkennat að nýja BMW hjólið hans Óskars var ekki sem verst og skilaði okkur ljúflega á áfangastað þó Ingi Rúnar væri ekki bjartsýnn á það og efaðist um að Hjólið og Óskar hefður þrek til að reiða 1stk Gunnar alla þessa leið(þar sem Óskar varð hálf níræður þennan dag), en þetta gekk vel, þeir sem austur fóru voru; Ég og Óskar, Ingi Rúnar, Gunni Rúnars og Villi vélstjóri og þakka ég þeim fylgdina. Þegar austur var komið reyndi heldur á Matta, eftir að hjólið mitt var komið út úr ferjunni neitaði það að fara í gang, en ég fékk ljúflega að fara til móts við Matta (til að redda málunum) en auðvitað lenti Matti í súpunni, hjólið var straumlaust og Matti mátti gjöra svo vel að ýta í gang og tókst það bara vel. Þar með var ég aftur kominn á bak á minni Hondu og var það dásamleg tilfinning. Svo var hjólað til Akureyrar með viðkomu á Olís í Fellabæ og enn var það ekki ég sem þurfti bensín, en tók svona til málamynda og ljúft var það. Ferðin endaði svo á Torginu þar sem hún byrjaði. Matti og Tóti komu svo í mat til mín og áttum við frábæra kvöld stund aftur saman. Svo munum við setja inn myndir eins og áður var getið og láta nokkur gullkorn fljóta með. Ég vil koma kærum þökkum til allta sem hafa stutt mig í þessum hremmingum og að öðrum ólöstuðum færi ég Óskar Óskars mínar bestu þakkir, það að fara út og ná í hjólið, fara til móts við þá félaga sem svo komu hjólinu sameiginlega um borð í ferjuna, þó strembið væri, þetta er slíkur vinátuvottur í minn garð að ég fæ það ekki nógsamlega þakkað, og svo að koma mér austur á Seyðisfjörð, takk Óskar,"gott er að eiga góðan að". GK

Engin ummæli: