sunnudagur, 1. júní 2008


Dagur fjögur 31-5-08

Nú þá var tekið á því komum í land í Hanstholm um kl.12.00 að staðartíma og þá datt okkur í hug fyrirhuguð höfn í Bakkafjöru. Þessi höfn er það þröng að með ólíkindum er hvernig Norrænu er snúið þar ánstórtjóns. Danmörk tók vel á móti okkur sól og ca.22°c Við hjóluðum nokkurnvegin í asutur til bæjar sem heitir Hals og þaðan var ströndin þrædd til Örsted og á þeirri leið forum við með tveim litlum ferjum og nú fór heldur að færast hiti í leikinn en mest fór hann í 28°c en sem betur fer var oftast smá andvari. Tóta er mikið létt, en hann var með allskonar áróður um Danska sveitavegi (þeir urðu fyrir valinu í dag)en það kom á daginn að þeir eru ekki svo djöfullegir. Hér er allt nánast í fullum skrúða og það er alveg indælt að hjóla í svona hita, reyndar er ekki eins gott þegar stoppað er en það venst og það vel vona ég. Við fengum Hittu hér norðan við Grenaa á stað sem heitir Fornaes. Við vorum svo heppnir að hitta mótorhjólamann á Mc camping club í Nordinger, og hann hringdi hingað fyrir okkur og panaði Hittu. Stutt er í ströndina héðan og gríðarlega góð aðstaða hér fyrir ferðafólk.

Í dag voru hjólaðir um 270 km. Hér er mynd af ferlinum

Í Danmörk er “dæligt” að vera

dúndur margt hægt að gera

hitinn oss hentar

honum er prentar

blogsíðu breiða og svera

G.kristins

Engin ummæli: