Dagur fimm 1-6-08
Sumir vöknuðu kl 06.00 en aðrir ekki fyrr en kl 08,00 í þvílikri sól og smá andvara. Í morgunmat fengun við okkur kex og ost sem við fundum í þjósustu-miðtöðinni og í gær borðuðum við niðursoðin Makríl og hrogn ásamt gúrku sem sumir voru mis-hrifnir af. Og eins og fyrr segir 20°C . Gott var að komast í sturtu í gærkvöldi. Ferjan til Varberg fer frá Grenaa kl 14,25 svo nú getum við setið í sólinni í rólegheitum. Það leit ekki vel út þegar við ætluðum að bóka okkur í ferjuna, við fórum á viðlista, en eins og venjulega reddaðist þetta
Nú er klukkan 22.00 og ég rétt að byrja skriftirnar. Þessi dagur er búinn að vera alveg frábær, reyndar var heldur heitt í ferjunni til Varborg og það var stutt hjólaleiðin í Svíþjóð við hjóluðum til Frillesos þar fengum við þessa fínu Hittu og hittum þar hjólafólk frá Danmörk, tvenn indælis hjón, sem voru að koma af Goldwing móti í Noregi. Hér er þessi fína baðströnd og fórum við Tóti í sjóinn og böðuðum okkur. Sjórinn er um 15°C þetta var alveg stórkostlegt í kvöldsólinni að sulla í volgum sjónum og synda örlítið. Hér er fullt af hjólhýsum og eftir því sem fólkið segir okkur þá voraði óvenjusnemma hér núna. Eins og venjulega vorum við heppnir það var bara ein Hitta laus og greinilega beið hún eftir okkur. Nú er mál að linni og sennilega verður morgundagurinn heldur lengri. GK
1 ummæli:
Ég held að það verði Nautalykt í þessari Hittu,með TARFANA þrjá um borð.
Skrifa ummæli