sunnudagur, 8. júní 2008

Dagur 8 4-5-08

Jæja þá er ég sestur við skriftir einu sinni enn. Og nú er ég um borð í bát í miðborg Stokkhólms,sem liggjum þar við kajann og er fljótandi hótel og veitingastaður. Við fengum þessa fínu káetu með þremur rúmum svo ennþá höfum við ekki þurft að tvímenna í bæli. Við forum ekki marga útúrdúra á leiðinni nema til að næra okkur og hjólin. Það var ekki lagt af stað fyrr en kl 15.00 og hér vorum við um kl 19,30, og á þessum tíma lágu 315 km veðrið eins og venjulega. Enn einu sinni leiddi “Garmurinn” okkur akkurat á réttan punkt við tókum prufu og renndum beint að Víking Line afgreiðslunni og þar hitti Tóti ljóshærðar laglegar sænskar “dömur” sem benntu okkur á þennan frábæra gististað. Aldrei þessu vant er ræs fyrir kl 06.00 í fyrramálið og tilhlökkunin er mikil að sjá skerjagarðinn og Álandseyjar. Umferðin var alveg gífurleg þegar við vorum að koma hér inn í Stokkhólm og erfitt að silast á hjólunum í allri þessari traffic og voru mótorarnir orðnir ansi heitir og sumir heitari en aðrir og þeir sem ekki hafa viftu að staðalbúnaði voru ekkert ofsælir, en þetta hafðist allt fyrir rest . Útsýnið úr káetugluggunum yfir höfnina og miðborgina er magnað, þetta er eins og sumt annað dettur upp í hendurnar á okkur svona eiginlega af sjálfum sér.

Dagur níu 5-6-08

Við vöknuðum kl 5,40 um borð í fljótandi hótelinu og tókum okkur og dótið okkar til, komum öllu á hjólin fengum okkur svo þokkalega góðan morgunverð og lögðum svo af stað að Viking Line og var þetta rétt um 800m og um borð og auðvitað síðastir þar sem við fórum með þeim fyrtu frá borði. Siglingin út frá Stokkhólmi er alveg srórkostleg og geta engin orð lýst því, myndirnar verða að gera það, og svo einnig aðkoman að Álandseyjum ekkert síðri en mun styttri. Við þvældumst svo norður eyjarnar aö stað sem heitir Geta. og einhvernveginn fundum við malarveg og vakti það ekki kátínu hjá Matta. En áfram var haldið með hugan við Stúkur en einn útúrdúrinn varð árangurslaus, en svo auðvitað fundum við Stúku á frábærum stað með ekta gufubaði einkabaðströnd þar sem við gátum valið úr hvort við vildum synda róa í venjulegum árabát eða kanó og var þetta allt prufað og á meðan var gufan að gera sig klára kynnt með viðarkubbum hér ú skóginum, síðan var sturtan vel þegin nú erum við í afslöppun og að leggja línurnar fyrir morgundaginn eins og gengur og gerist. 116 km í dag. GK

Dagur tíu 6-6-08

Álandseyjar og í dag átti að taka það rólega en það lágu samt 192 km. Það var margt að skoða og samt sem áður skoðuðum við bara eina kirkju og hvernig sem á því stóð, þá stóð það alls ekki til en svona eru tilviljanirnar að við duttum niður á þessa kirkju og þá var það elsta kirkjan hérna eða bygð um 1200 og úr steini, þið gerið ykkur kannski í hugarlund hvernig byggingarnar voru heima á góða Íslandi á þessum tíma. Við erum nánast búnir að aka flesta malbikaða vegi hér um slóðir og einnig nokkra ómalbikaða, austur og vestur norður og suður hér búa um 25000 manns eða rétt eins og í Eyjafirðinum, enginn jarðhiti engin vatnsorkuver, en það eru ferjur trjáiðnaður, bændur og ferðamenn sem halda þessu uppi að stærstum hluta. Hér eru ræktuð eppli í einhverju mæli. Þetta svæði er frekar láglennt, og dettur mér allavegna í hug Danmörk. Fólk er ákaflega vinsamlegt hérna og er sænska töluð hér. Fáninn þeirra Álendinga er ansi kunnuglegur hann er eins og sá Íslenski nema það er gult í stað hvíta litarins í þeim Íslenska. Jarðvegurinn hérna er ansi leirkenndur að sjá ekki svona brúnn moldarlitur eins og á Fróni. Þó það sé töluð sænska hérna þá eru Álandseyjar hluti af Finnlandi en hafa sammt sinn fána. Álandseyjar eru hluti af Evrópusambandinu og eru ekki allir hér mjög sáttir við það, nú má ekki gera neitt hérna að þeirra sögn, stóri bróðir vakir yfir öllu og mikið um reglugerir sem taka sinn tíma, eða semsagt þungt í vöfum. En svo ég snúi mér að allt öðru og því sem stendur mér nær, þá er það nú þannig að áður en lagt var af stað í þessa ferð var smíðaður baukur á VTX-inn sem tekur 15 ltr. Ég sagði svona bæði í gríni og alvöru að það væri svo langt á milli Olísstöðva hér á norðurlöndunum. Sumir vildu meina að annar mjöður ætti að fara í þennan kút og verður svo hver fyrir sig að giska og dæma, en St.Bernhards hundar voru með kúta um hálsinn og einhverjum þótti þetta mynna all verulega á þá. En svo ég haldi áfram þá er hluti af svona ferðalagi að taka bensín og þá er það nú þannig að ég hef “ekki enn ÞURFT að taka bensín” það er annað hvort Tóti eða Matti sem þurfa þess og þar sem við erum félagar og ekki stitnar slefan á milli okkar (ennþá) þá hef ég eins og sannur félagi verið með og í þeim í þessum leik og ekki skorast undan að stoppa með þeim og tanka svona til málamynda.

Dagur ellefu 7-6-08

Já einn dagur enn og nú er verið að reyna að komast frá Álandseyjunum og fyrsti áfangi var lagður að baki í dag. Við lögðum af stað frá Hummelvik sem er hjá Vardö og með ferju til Torsholma en með viðkomu á Enklige-Kumlige og síðast en ekki síst LAPPO. Þessi ferð tók 3klst og 45 mín og ferjan svona ca 10 m lengri en Sæfari. En eins og oft vill verða þá kemur alltaf eitthvað uppá og það þarf náttúrulega að leysa. Og í dag var það bæði að Matti er nær bensínlaus og eina bensínsalan hér tekur ekki kortin okkar (gaman) nú og svo forum við að reyna að fá Stúku, en þá tekur enginn kort hérna, svo nú voru góð ráð dýr og það var skrapað saman 30 evrum og 200 norskum krónum og þar með var Stúkan okkar, en þá var eftir að ná í eitthvað að borða og ú er laugardagur og allir banker lokaðir og enginn hraðvbanki á svæðinu, svo á endanum fengum við uppgefna búð hjá “Trixi” og það var nú heldur trix að hitta þá konu. Auðvitað var það einkaframtakið sem reddaði okkur núna “Trixi” er með veitingasölu og búðarhorn svona til nauðþurfta. Við fengum heimagert “rúgbrauð” það er nú ekki eins og heima á Fróni, þette er hringlaga stykki svona 3cm á þykkt og ca 20 cm í þvermál en ágætlega bragðgott. Nú við þurftum líka viðbit en allt var svo stórt 500 gr og við höfum ekki góðan kælir á hjólunum svonú voru góð ráð dýr en “Trixi” reddaði þessu hún náði sér bara í hníf í elshúsið og skar stykkið í tvennt og þar með voru öll vandamál úr sögunni eða nánast , þar sem við vorum nú algjörlega auralausir þá reddaði hún okkur líka 20 evrum eins og ekkert væri sjálfsagðara, svona konur eru bráðnauðsinlegar.

Dagur tólf 8-7-08

Stundum gerist meira á nokkrum mínútum heldur en við ráðum við og oft er það hafið langt yfir allan skilning okkar, og þegar svona gerist þá kemur það alltaf flatt upp á mann og einhvern veginn er það þannig að við skiljum ekki hvað sá Hæsti er að hugsa en í nótt hringdi siminn hjá Matta, þar sem ekki var hægt að ná í símann minn, og þá var það Dóra mína að tilkinna mér að PABBI hafi kvatt þennan heim og sé farinn á vit hins Hæsta. Ég er ekki í vafa um að vel er tekið á moti þeim "gamla" en hann var rétt kominn á 75 aldursárið og í raun finnst mér þetta mjög ótímabært, sér í lagi þar sem hann var að ná sér upp úr mikillki lægð, búinn að safna kröftum hjá góðu fólki á Reykjalundi og kominn í sveitina "sína" Saurbæinn að njóta sumarsins á Jaðri, og það var akkúrat þannig sem hann kvaddi, sitjandi á stól úti á palli og horfandi yfir eina fallegust sveit á Íslandi "Saurbæinn", ég veit að synir hans tveir sem á undan eru farnir taka vel á móti honum, en það er ljóst í mínum huga að hann náði sér aldrei eftir að Ingófgur bróðir fórst í Breiðafirðinum 1983. Ég bið ykur að afsaka þetta raus mitt en einhvernveginn er það þannig að tilfinningarnar verða að fá útrás og svona gerist það hjá mér. Ég vil núna færa SOS hjálp Visa mínar bestu þakkir og sér í lagi "Idu" sem ég veit ekki hver er en hún bókkaði farið fyrir mig og fann pláss fyrir hjólið í bílageymsluhúsi,"takk IDA". Ég sit núna á Hóteli við Arlandaflugvöll farinn frá félögunum, en þeir eru núna um 200 km sunnan við Vaasa í Finnlandi búnir að finna sér gott gufubað á fjölmennu tjaldstæði þar sem mikið er um konur og þar sem þeri eru báðir óbundnir og lausir við mig þá getið þið rétt ýmindað ykkur hve gaman er hjá þeim núna. Þeir halda ferðinni áfram, reyndar bara á 2/3 afls en engu að síður spjara þeir sig vel. Tóti er búinn að standa sig eistaklega vel í öllum samskiptum við "innfædda" þar sem hann bjó jú einu sinni í Sverge. Ég hætti leik þá hæst hann stóð, og er það ekki þannig sem sumir vilja hafa það. Hjólið mitt verður eftir hér á Arlanda og reikna ég með því að Óskar Óskars klári ferðalagið á mínu hjóli í næstu viku, en þá ætlar hann á móti þein Tóta og Matta og fara um Trollsigan og Geirangursfjörðinn með þeim. Það verður gaman hjá honum að komast á "alvöru" hjól. Takk í bili G.kristins

Pabbi er farinn,farinn á vit

feðra og sona sinna

einn í útlöndum einmana sit

einn meðal hugsana minna.

G.kristins

2 ummæli:

Unknown sagði...

Elsku tengdapabbi.
Ég votta þér samúð mína og tek þátt í sorginni. Við sögðum krökkunum frá því í morgun að englarnir hans Guðs hefðu komið að sækja Kidda afa í sveitina. Elísabet Ásta skildi strax hvað við meintum og túlkaði fyrir litla bróður sinn. Eysteinn Ísidór skilur þetta auðvitað ekki alveg - nema hann sagði, þá verður Bíbí amma ein. Elísabet Ásta skilur að við hittum ekki Kidda afa aftur. Hann er hjá Guði eins og Hulda langaamma segir hún.

Jorundur sagði...

Elsku Gunnar, vinur okkar.
Við vottum þér og þínum okkar mestu samúðaróskir.
Jörundur og Edda.