Dagur 7 3-6-08
Einu sinn enn er ég byrjaður og sæl verið þið. Ég veit ekki hvað ég á að segja um +18 myndirnar en svona er nú ástandið á okkur. Ég verð nú endilega að koma þökkum að hérna frá okkur þremenningunum til Jónu Finndísar þar sem hún skóp þessa bloggsíðu fyrir okkur, hvað svo sem öðrum finnst um þau ósköp sem birtast hérna. Takk segjum við. En að öðrum málum við fórum í dag frá Fjallbacka og til
Hér hittum við bróður Tóta Sigurð konu hans Ölfu og börn Davíð og Tinnu. Þar var tekið á móti okkur með kræsingum miklum einnig hittum við Ragnar sem gerðist einkabílsjóri okkar og fór líka með okkur í bað í vatninu (Venen). Öll áttum við góða stund á heimili þeirra heiðurshjóna og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir frábært kvöld. Ferðalagið í dag minnti á ferð sem við fórum fyrir tveim árum niður í gegnum Svíþjóð og þá var bara stoppað á bensínstöðvum. Gott í kvöld. GK MAX ÞK
4 ummæli:
Blessaðir, ég verð að segja að það var auðvitað af tómri sjálfselsku sem ég hjálpaði til við að setja upp síðuna... ég reiknaði með, eins og kemur svo hérna í ljós, að það yrði rosalega gaman að fá fréttir af ævintýrinu ykkar jafnóðum :-)
Sælir meistarar
Ekki taka 18+ commentinu illa ;-) Þarna eru alvöru karlmenni á ferð út í gegn, einnig verður fróðlegt að sjá "tanið" þróast út mánuðinn.
Annars þá megið þið prísa ykkur sæla að vera ekki á Akureyri í dag, því að það var rigning og ég keyrði heim á bergnum rassblautur.
Með kveðju
Hjalti Steinn
P.s. ef að það er möguleiki, þá endilega lagiði dagsetningarnar á myndavélinni hanns Tóta.
Gaman að lesa af ferðalagi ykkar félaga. Góðar ferðakveðjur til ykkar frá Pétri og Áslaugu.
Gaman að fylgjast með þessu... Svo lengi sem þið eruð sælir með að verða tanaðir með hvíta slettu yfir miðsvæðið þá sleppa myndirnar, ef þið ætlið hinsvegar að fara að vinna í að tana það svæði líka væri líklega gott að "gleyma" myndavélinni :D
Svo þarf að setja rúðuþurku á myndavélahjólið til að berja fluguleifarnar af... :)
Kveðja úr borg óttans.
Kiddi
P.s., ég fékk heldur undarleg augnaráð þegar ég var að skoða risastóra mynd af hálfberum karlmönnum hér í vinnunni :)... ég þurfti að útskýra þetta ansi vel :)
Skrifa ummæli