Dagur 6. 2-6-08
Sennilega er ekki rétt að bjóða góðan daginn núna. Við vorum ekki í netsambandi í gær og þess vegna var ekkert sent út þá. En nú er allt betra og við komnir töluvert norður fyrir Gautaborg,(Fjallbacka 30°C ). Við lögðum af stað um kl 11.00 og þá í 27°C og þá vorum við búnir að baða okkur bæði í sjónum og eins fara í sturtu, reglulega hreinir orðnir. Það var ekkert létt mál að fara í gallann í þessum hita, en sem betur fer er mótvindurinn góður og þá sér í lagi fyrir þá sem hvorki eru “kerlingar eða hommar” og þetta verður hver að skilja eins og hver vill. Nokkrar smáferjur voru á þessari leið og eins og góður maður sagði forðum þá endar vegurinn allt í einu og ekkert nema sjórinn framundan, nema betur sé að gáð og þá er jafnvel ferja á leiðinni eða að koma frá hinum bakkanum. Þessar ferjur eru dregnar yfir á vírum, og í Svíþjóð kostar ekkert í ferjurnar annað en í Danmörk þar þarf að borga fyrir svona smá skutl, eins og ég hef alltaf sagt þeir eru ansi samansaumaðir Danirnir (er það ekki rétt Kristján) Hérna í Fjallbacka er líka aðstaða til að baða sig í sjónum, en sumstaðar er hann ansi djúpur og að sama skapi kaldur og nú er það klárt að ég pissa ekki næstu dagana án “tangar og flautu”. Við komum við í ansi fallegum bæ Lysekil hann er á stærð við Akureyri, á þessum slóðum er mikið um skútur og aðra báta enda góð aðstaða til slíks sports hér. Við erum búnir að þræða sveitavegi og eru margir þeirra bara einbreiðir en allflestir malbikaðir. Guataborg var okkur frekar erfið forum í nokkra hringi tókum ranger beyjur og svo í þokkabót var verið að vinna í vegagerð svo við þurftum að taka enn eina slaufuna til að komast þar í gegn og mikið var okkur létt þegar blessuð sveitin blasti við okkur og venjuleg bensínsöð með fullorðinni konu sem gat ekki sagt okkur á korti hvar við vorum var staðreynd, eftir borgarhremmingarnar. Við hittum þarna mjög almennilegan karl sem vildi allt fyrir okkur gera eins og það að benda okkur á frábæra leið hér um og þegar betur var að gáð var það akkúrat leiðin sem við vorum búnir að skipuleggja heima á gamla og góða Fróni með hjálp Google earth og var það verulega til að auka á sjálfstraust okkar, annarstaðar en í borgarakstri. Og einhvern veginn er það svo áreynslulaust og gott það sem búið er og í raun heimilislegt að það er ekki nokkur leið að hugsa sér að við séum langt langt að heiman. Auðvitað hefur þetta góða veður sín áhrif og sennilega yrði þetta allt heldur öðruvísi ef alltaf væri grenjandi rigning og kalt (eins og hjá ykkur heima!!!!!!!!!! Ha….ha….) Gott í kvöld og nokkarar myndir. GK ÞK MAX.
2 ummæli:
Sælir höfðingjar
Þessar myndir fara nú að verða 18+ efni, og þið megið túlka það eins og þið viljið (ath pornó og hryllingsmyndir falla báðar undir 18+ flokkinn)
Annars þá er allt í gotti hérna heima, nema að það væri nú svekkjandi fyrir ykkur að vita hitann hérna á Akureyri, allavega hefur lekið af mér lýsið síðustu daga, en samt nóg eftir enn.
Kærar kveðjur úr Flatasíðunni þar sem horft er á skjáinn eins og í góðu "júróvísionpartýi" slíkur er fjöldinn og stemmingin.
Með kveðju
Hjalti Steinn, Jóna Finndís, Dóra og Elísabet Ásta
Vegur endar, góðar ferjur, frábær vegur ......... mikið af mynningum rifjast upp við þessar frábæru ferðasögur sem hér eru skrifaðar. Góðu lagi þó veðrið sé ansi heitt og við "kerlingarnar" getum alveg bundið rúðuna á farangurinn í svona tilvikum .... he he he.
Verð líklega kominn til Danmerkur næst þegar ég kíki á ferðalag ykkar.
Sólarkveðja frá Akureyri, Jöri
Skrifa ummæli