laugardagur, 24. maí 2008

Þrír dagar til stefnu


Að morgni 24 maí og við feðgar(Gunni og Hjalti Steinn) að leggja af stað til Siglufjarðar, reyndar fór Hjalti bara á Sölvabakka.... Snemma beygist krókurinn og dóttursonurinn hann Eysteinn Ísidór að gera sig kláran í mótorsportið og erfitt var að fá ekki að fara með. En koma tímar og koma ráð og ekki vantar stuðninginn! Þetta var frábær dagur, við hittum Króksara og þar var sameinast og ekið sem leið lág til Siglufjarðar og að vanda tóku Siglfirðingar vel á móti gestum og biðu okkar við Ketilás(mynd 1). Svolítið var um "kókópuffs" á leiðinni og "jarðsigið" var eins og venjulega. Lögreglan greiddi götu okkar í gegnum Strákagöngin og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Við stilltum svo hjólunum upp á Olís planinu og spændum í okkur veitingar og þar eins og annarstaðar kunna Siglfirðingar sitt fag og færum við þeim bestu þakkir fyrir okkur. Heim var farið í nokkrum smærri hópum og Lágheiðin valin af sumum og var hún holótt en í raun ekkert verri en "kókópuffsið" Og eins og sönnum Akureyringum og hollum Húsvíkingum sæmir þá var komið við bæði hjá Olís á Ólafsfirði og einnig á Dalvík. Abbi Húsvíkingur og þeirra formaður var með einhverjar áhyggjur af "öndunarvél" þannig að hann varð að drífa sig heim ásamt sínu liði, en auðvitað fylgja þeir "formanninum". Einhver var að spá í "stellinguna" sem Abbi er í á nýja hjólinu, en þar sem hann er minn formaður þá finnst mér "stellingin" alveg frábær. Við komum við á Torginu á Akureyri og áttum þar gott spjall og eins og venjulega dásömuðu Húsvíkingar sem og aðrir veðrið á Akureyri sem er "alltaf" gott. En á morgun er víst betra að gera allt klárt olíuskipti og að undirbúa nýja barða undir hjólin okkar Matta. Tóti (Þórarinn) er í menningarferð í Reykjavík, hvað sem það táknar hjá þeim ágæta manni, og vorum við Matti mjög einmana og hálf haltir að hafa ekki þriðja "prikið" að styðjast við. En Tóti lofaði bót og betrun og í sárabætur kemur hann með farmiðana norður sem við voru hálfpartin farnir að óttast um. Engar fregnir hafa borist að Húsvíkingum eftir að þeir yfirgáfu Torgið á Akureyri en allar fréttir af þeim öndvegismönnum eru vel þegnar!
Húsvíkingar heim á leið
hurfu í hvelli
hver veit hvernig sumum leið
með harða "hnakka"
G.kristins
Gott í kvöld og munið eftir "barninu í hjartanu"

3 comments:

Hjalti Steinn sagði...

Sælir
Hérna er slóðin á innslagið sem kom í N4 á mánudaginn http://www.n4.is/video/one/?id=142
Reyndar vantaði alveg MAX sem og 1800VTX, en engu að síður gott viðtal.
Ekki laust við að maður öfundi ykkur tölvert af þessu ferðalagi.
Með kveðju
Hjalti Steinn

Jóhann V Norðfjörð sagði...

Sælir strákar,

Vildi bara óska ykkur góðrar ferðar, og skemmtunar í skandinavíu.

Hlakka til að fylgjast með ykkur hér á síðunni.

Með vespu-kveðju,

Jói Norðfjörð
joi@borgarbio.is

Jörundnur sagði...

Jæja ..... þá er ferðin ykkar hafin í frábæru veðri. Það verður gaman að fylgjast með ykkur hér á þessari síðu.

Bestu óskir um frábæra ferð, Jöri