fimmtudagur, 29. maí 2008


Norðurlandaferð 28- 05 til 26-06- 2008

Dagur eitt. 28-5-08

Dagurinn byrjaði vel alla vega fyrir þá sem á annað borð sofnuðu. Það var hittingur á Ráðhústorginu kl 06.50 og farið af stað kl 07.00 um leið og klukkan í Akureyrarkirkju sló. Sól og blíða og nokkriri jaxlar sem ætluðu að fylgja okkur mislangt. Þarna voru mættir: Trausti og Didda, Tobbi, Hjalti Steinn, Gunni Hafdal og frá Dalvík kom liðhlaupinn Óskar Óskars Gunni Rúnars var með allskonar afsakanir og þar á meðal að laga þyrfti tennisolnboga og hann sem aldrei hefur spilað tennis! . Þeir sem fyrst snéru til baka gerðu það við Grímstaði á fjöllum (Hjalti Steinn og Óskar) þeir halda að þeir séu ómissandi í vinnunni. Restin fylgdi okkur alla leið og gott betur, því þegar þau skildu við okkur á Seyðisfirði þá fóru þau til Reyðarfjarðar og gvuð má vita hvert. Við (heilaga þrenningin) erum nú um borð í Norrænu og mjög stabílir ekki enn búnir að fara á barinn eða þannig og hvað þá fríhöfnina. GPS tækið segir að eknir km séu 298,8 nákvæmt skal það vera. Þegar við vorum búnir að ganga frá hjólunum vorum við orðnir ansi heitir svo ekki sé meira sagt og skolli var gott að komast í sturtu. Nú vonum við bara að ekki rigni mjög mikið í Færeyjum, því við erum búnir að fá vilyrði fyrir því að fara í land með hjólin og skoða okkur um í nokkrar mínútur. Þetta verður að vera gott í dag. Kæra fylgdarfólk takk fyrir okkur.

Byrjunin björt og fögur

brátt fást meiri sögur

um dáða drengi

sem ég ekki rengi

á hjólum sem áttu að vera fjögur.

G.kristins

Dagur tvö. 29-5-08.

Kæri jóli. Hvað með allar kindurnar sem þú sendir okkur í dag meðfram öllum vegum í Færeyjum. Við hjóluðum frá Þórshöfn og að Eiði sem er nánast nyrst og svo smá hring til baka. Örlítil súld var á okkur og lágskýjað og eins og Matti sagði “úrkoma í grennd” og þá hlítur að hafa verið úrkoma á Íslandi.! Við hjóluðum 129,9 km í dag. Hér skipta smáatriðin ekki máli. Tóti er búinn að vera heldur úfinn þessa daga og á Gulli klippari stærsta sök á því, en í dag brá til betri vegar, við hittum “ljóshærða laglega snót” sem endilega vildi hafa hendur í hári slíks efnamanns sem Tóti er. Og það skipti engum togum karlinn var færður úr og honum snarað í stellinguna og þar sem hann er kominn á þennan aldur þurfti eitthvað meira til að örva hann svo áður en við vissum, voru komnir tveir kaffibollar á borðið og sú ljóshærða farin að fara höndum um “höfuðið”. Þetta tók þann óra tíma (enda gerast góðir hlutir hægt) að við vorum að verða of seinir í ferjuna.

Og svo.

Snótin höfðinu strauk

strax úr því rauk

ljúft á hana leit

langaði í “pylsu”

hárið Tóta hvarf á braut.

G.kristins.

Es. það er eitthvað vesen með að hlaða inn myndum hér um borð í Norrænu, alla vega kenni ég því um. En það lagast allt á endanum, vonandi. GK

Engin ummæli: