Jæja nú er þetta að renna upp. Ekki margir dagar þar til við ökum um borð í Norrænu og þjöppum okkur saman (þrír í sama klefa) og leggjum loka hönd á fyrirhugaða ferð um Norðurlöndin. Sumir eru búnir að öllu en aðrir eiga allt eftir bæði á gömlum dekkjum og með smurolíu frá því í fyrra. En eins og gamla góða máltækð segir 'þetta reddast'. Og það sem ekki er klárt það verður bara að vera óklárt. Í gamla daga gat maður varla sofið síðust dagana fyrir jól og ég er ekki frá því að núna sé einhver gömul nostalgía að taka sig upp en á allt öðrum árstíma. En það verður aldrei of oft sagt að hvað sem á gengur verðum við að varðveita 'barnið í hjartanu' og ekki er endilega víst að seinna sé hægt að fara svona ferð, þó ég sé ekki með neitt svartsýnisraus þá á maður að njóta líðandi stundar og hafa ekki allt of miklar áhyggjur af því hvað nágrannanum kann að finnast um uppátæki manns á meðan þau meiða engan.
Fiðringurinn finnur margar leiðir
fram í útlimi hann ýmist seiðir
gulur eða grár
gefur þrár
góður meðan engan annan meiðir
G.kristins
Þetta er gott í kvöld verðum í sambandi reglulega næsta mánuðinn. GK
miðvikudagur, 21. maí 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd